Lundinn konungur fugla

Vestmannaeyjar hafa löngum verið vinsæll viðkomustaður farfugla og árlega staldra við milljónir fugla. Að jafnaði verpa um 30 tegundir fugla í Vestmananeyjum og nokkrar tegundir hafa til skamms tíma ekki orpið annarsstaðar á landinu. Í gegnum aldaraðir hefur fugl verið nýttur til matar. Á sumrin fara menn í úteyjar og dvelja þar dögum saman við eggjatöku og síðan við veiðar. Lundinn er konungur fugla í Vestmannaeyjum enda er hvergi í heiminum eins mikið af honum. Í ágústmánuði fer pysjan (ungi lundans) úr holu sinni. Ljósið í kaupstaðnum freista og hundruðum saman fljúga þær á vit ljósanna. Hvarvetna eru hjálpfúsar hendur barna sem fara um bæinn og safna þeim saman. Daginn eftir er farið með pysjurnar niður að sjó, þegar þangað er komið er þeim sveiflað styrkum höndum hátt á loft, þannig að þær grípa flugið á vit frelsisins út á sjó. Krökkunum er það mikið kappsmál að bjarga sem flestum pysjum og er sá pysjukóngur sem nær flestum pysjum (þessi nafngift er nú aflögð).